Profil de Inga RósBlómarósin...PhotosBlogListesPlus Outils Aide

Inga Rós Georgsdóttir

Msn: ingaros83@hotmail.com
Le réseau de cette personne est vide (ou privé).
22 décembre

Flutt!!!

er komin með aðra síðu....  kíkið á 123.is/ingaros
16 décembre

Komin heim til múttu og litlu systu :)

Þá erum við komin heim í sveitina. Komum í gær, með TROÐFULLAN bíl af mat, fötum og jólagjöfum  Svo komu Ósk og Alica með þannig að þær þurftu að stija í kremju afturí  Við lögðum af stað kl 8 um morguninn og komum við á Skaganum hjá ömmu og afa. Alltaf jafn yndislegt að sjá gömlu hjónin. Þar var stoppað og fengið sér kræsingar að hætti ömmu  Svo var ferðini haldið áfram í Hólminn, vorum að vísu um 2 tímum of snemma  þökk sé Svavari  já svo þurfti að hífa bílinn okkar uppá Baldur, því það var víst ekki pláss í bílaþilfarinu  frekar fyndið að horfa á þegar bílnum var  slakað niður.... og ekki gat Alica litla verið ein í bílnum uppá þilfari þannig að Svavar fékk að lauma henni niður í koju til Ósk. hehehe
Svo í dag fórum ég og Svabbi með pabba til ísafjarðar að versla í bónus fyrir hann og Vallý. Ferðin gekk vel og var gaman að sjá bæinn og fólkið aftur. En verð samt að viðurkenna að það var ansi strítið að hitta Óskar og hans familyu þegar Svabbi stóð við hliðina á mér.  en allir voru voða kammó og allt fór vel. Óskar lét mig fá restina af dótinu sem ég átti heima hjá honum, og er ansi gott að vita að allt manns er komið til mín
Já svona er þetta... Heyðu já gleymdi næstum einu... það var brotist inn hjá okkur í síðustu viku og fartölvunni minni stolið  og allar myndirnar og öll lögin mín  en núna erum við komin með Securitas þjófavörn í húsið þannig að við getum slappað af yfir jólin
En verð að hætta núna, litla systir er ólm hérna hjá mér, henni langar svo að fara í tölvuna.
 
Bæ í bili
 
29 novembre

Home SWEET home

Jæja þá er maður komin heim í rvk-ina. . . Þessi vika á Patró var algjört æði, það er alltaf svo gott að komast í sveitina að pústa  Svo styttist í að við förum aftur á patró um jólin  Annars er lítið annað að frétta. . . Jú ég fékk LOKSINS lyfin mín í dag, núna er bara að bíða og sjá hvað gerist... ég vona svo innilega að þetta fari að lagast hjá mér, ég er að verða geðveik!!!  ég get ekki annað en vorkennt greyið Svavari, ég er svo óútreiknanleg í skapinu  En þessi elska stendur með mér eins og klettur... ég gæti þetta ekki án hans...
Núna er svo að byrja þetta skemmtilega jólastúss. . . Fórum í dag í Kringluna, allt fullt af fólki og rosalega mikið skreytt... ég hlakka svo til að fara að kaupa jólagjarfirnar
Elsku pabbi er farinn að vinna á Hvanneyri, núna er stutt fyrir kjéllinn  að koma og heimsækja litla barnið í rvk-inni   en jæja þetta gengur ekki. . . það er best að fara að gera eitthvað í litlu holunni minni...
 
Later
 
 
26 novembre

Amæli og aftur afmæli :)

Ég er enn á Patró, er heima hjá Vallý og Georg litli, vorum að borða og ætlum svo að horfa á sjónvarpið og éta nammi  Er líka að passa litlu yndislegu systir mína hana Guðný. Mamma er að fara á jólahlaðborð að djamma.  Svo 23. nóv átti hún Steinunn Björg afmæli! Innilega til hamingju elskan mín  Í gær átti svo elsta systir mín Ósk afmæli, innilega til hamingju með daginn í gær sæta
Eftir nokkra daga hérna á patró er ég komin með netta heimþrá, hlakka svo til að komast aftur heim í rvkina... Við förum heim á morgun
 
Blogga svo aftur þegar ég kem hjem
 
Bæ í bili
21 novembre

Komin heim í heiða dalinn

Núna er mín stödd á Patró   Eftir mjög skemmtilega helgi í sumarbústað við Brekkuskóg, þar sem var djammað feitt og legið í pottinum.  Svo ákvað ég í gær, rétt uppúr þurru að fara heim á Patró . Hringdi í Baldur í morgun og bókaði far. Við þutum af stað, veðrið var ógeð! Og ekki var sjófærðin skárri!!!  Ég ældi að vísu ekki neitt, barðist mikið við að æla ekki yfir greyið Svavar.  Ég hreinlega hata að ferðast með Baldri!! bjakk!!! Núna sit ég heima hjá Vallý og litla Gogga. Voða skemmtilegur gestur sem ég er, heng bara í tölvunni. Er að spá í að hætta þessu og tjatta við pápa og Vallý.
 
 
7 novembre

Loksins komin með svar...

... við þessu endalausa veikindaveseni á mér. Ég var greind með ofstarfssemi í skjaldkirtlinum.  Þar er komin skýringin á öllu sem hefur bjátað á hjá mér síðustu ár! Þar á meðal þessa hraða þyngartap. Fyrstu einkenni eru oft taugaspenna, óróleiki, hitaóþol, mikill sviti, þreyta, máttleysi, tíðar hægðir og ýmis konar óþægindi frá hjarta. Húðin er oft rök og heit, hárið verður fíngert og neglur þunnar. Síðar geta komið fram alvarlegar hjartsláttartruflanir, hjartabilun, fíngerður handskjálfti, beinþynning og 5-10% fá útstæð augu. Allt þetta hefur verið að hrjá mig undanfarið... ekki gaman..  Ég fæ svo vonandi lyfin mín núna í vikunni eða næstu... þá eiga einkennin að hverfa ef allt gengur eftir. Það sem þessi lyf gera er að stöðva alveg virkni skjaldkirtils og þess vegna þarf ég síðan að fara á hormónalyf. Síðan var eitt skrítið sem kom í ljós í blóðprufunni. Heiladingullinn sem á að stjórna virkni skjaldkirtilsins var bara með 0.01% virkni, og svo var virknin í skjaldkirtlinum alltof mikil.
En nóg um þetta... annars gengur lífið sinn vanagang hérna í rvk-inni. Ég fór í smá mömmuleik á helginni, Svavar var með strákinn sinn hann Óla yfir helgina  og gerðum við margt skemmtilegt, fórum meðal annars í sund, húsdýragarðinn, í kringluna og smáralind.
En jæja maður þarf víst að sofa eitthvað þannig að þetta verður ekki lengra í bili
 
blee
22 octobre

What´s wrong with me?

Lífið hjá mér einkennist af því að vinna, sofa og borða þessa dagana. Var að vísu veik um daginn, er enn með þessa hel***** hálsbólgu  Fer svo aftur til saxa á mánudaginn. Humm ég er eitthvað svo dofin að ég ætla að hætta að skrifa...
 
Later
 
Photo 1 sur 27